Skatturinn og Fjársýsla ríkisins munu flytja starfsemi sína í 11.700 fermetra húsnæði í nýbyggingu við Katrínartúni 6 í desember árið 2022. Gengið var frá leigusamningi við Íþaka fasteignir, eiganda húsnæðisins í vikunni. Þetta kemur fram á vef Framkvæmdasýslu ríkisins. Samningurinn er til 30 ára með framlengingarákvæði.

Þar kemur fram að húsnæðið hafi verið valið að undangengnu ítarlegu valferli þar sem meðal annars hafi verið litið til gæða, verðs og staðsetningar, varð húsnæðið við Katrínartún fyrir valinu.

Framkvæmdir standa yfir við húsnæðið en Wow air var með skrifstofur í húsi á lóðinni sem var rifið fyrr á þessu ári til að rýma fyrir nýbyggingunni að því er fram kemur í umfjöllun um málið í Morgunblaðinu í dag.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri, bendir á í tilkynningu að skatturinn sé í dag með starfsemi í þremur byggingum á höfuðborgarsvæðinu en muni verða á einum stað eftir flutningana. Í byrjun árs 2020 voru embætti Tollstjóra og Ríkisskattstjóra sameinuð í nýtt embætti, sem fékk nafnið Skatturinn. Þá sameinuðust Skatturinn og Skattrannsóknarstjóri þann 1. maí.

„Það mun gjörbreyta starfseminni hjá okkur að ná að sameina alla þessa starfsemi í nýju nútímalegu og sveigjanlegu húsnæði sem auk þess leiðir til þess að við hjá Skattinum getum veitt betri þjónustu á einum stað ásamt því að hafa í för með sér hagræðinu í rekstrinum hjá okkur. Við erum mjög spennt fyrir því að flytja í þetta glæsilega húsnæði í lok næsta árs,“ segir Snorri.

„Nýtt húsnæði er mikilvægt til að bregðast við breyttum kröfum og vinnulagi ásamt því að uppfylla markmið um hagkvæma og markvissa húsnæðisnýtingu, nútímalegt vinnuumhverfi og tækifæri til samnýtingar aðstöðu þvert á stofnanir. Það er trú mín að verkefnamiðað vinnuumhverfi í þessu glæsilega nýja húsnæði muni efla starfsemi Fjársýslunnar og bæta þjónustu með aukinni skilvirkni og styttri boðleiðum og fögnum við þessum áfanga og hlökkum til flutninga, segir Ingþór Karl Eiríksson, fjársýslustjóri FJS

„Leigusamningurinn  er stór áfangi í þessu verkefni. Starfsfólk Skattsins og Fjársýslunnar getur hlakkað til þess að flytja í nýtt og vandað framtíðarhúsnæði. Húsnæðið býður upp á sveigjanlegar lausnir sem aðlaga má að þróun embættanna,“ segir Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri FSR.