Samkeppniseftirlitið hefur beðið International Airlines Group (IAG), móðurfélag British Airways, um álit á fyrirhugaðri yfirtöku Icelandair á Wow air samkvæmt frétt Túrista , en yfirtakan er háð samþykki eftirlitsins.

IAG hefur ekki viljað gefa upp hvort og þá hvaða frestur var settur á skil upplýsinga til Samkeppniseftirlitsins.

Yfirtakan er einnig háð samþykki hluthafafundar Icelandair, sem haldinn verður eftir viku, en óvíst er hvort úrskurður Samkeppniseftirlitsins muni liggja fyrir.