Samkeppniseftirlitið getur unnið betur með atvinnulífinu og þá sérstaklega sinnt leiðbeiningarhlutverki sínu í auknum mæli. Þetta segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í viðtali við tímaritið Þjóðmál sem er nýkomið út.

Í viðtalinu er farið um víðan völl, fjallað er um viðbrögð ríkisstjórnarinnar vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og hversu mikilvægt markaðshagkerfið reynist í þeim aðstæðum sem nú eru uppi. Rætt er um mögulega sameiningu og fækkun ríkisstofnana, mikilvægi þess að leggja áherslu á nýsköpun, umhverfið í stjórnmálum og fleira.

Í viðtalinu er Þórdís Kolbrún einnig spurð út í stöðu Samkeppniseftirlitsins, sem hefur á undanförnum árum hlotið mikla gagnrýni fyrir óbilgirni í garð fyrirtækja, seinagang í afgreiðslu mála, undarlegar ályktanir og fleira í þeim dúr. Hún er meðal annars spurð að því hvort henni finnist sú gagnrýni sem Samkeppniseftirlitið hefur fengið réttmæt og í framhaldinu hvort að það sé hlutverk hennar sem ráðherra að verja stofnunina eða atvinnulífið og einstaklingana sem hana gagnrýna.

„Það er að hluta til eðli Samkeppniseftirlitsins að vera óvinsælt hjá stærstu og sterkustu fyrirtækjunum í landinu. Ég hef auðvitað fundið mikið fyrir þessari gagnrýni og átt í samskiptum bæði við atvinnulífið sem og Samkeppniseftirlitið. Ég hef alveg verið óhrædd við að koma þeirri gagnrýni til hvors aðila um sig," segir Þórdís Kolbrún.

„Ég er fyrst og fremst talsmaður þess að hér ríki öflug samkeppni sem sé neytendum til hagsbóta, útgangspunkturinn á að vera staða neytenda en ekki fjöldi fyrirtækja á tilteknum markaði, þótt það fari oftast saman."

Þá rifjar Þórdís Kolbrún upp að hún sé búin að leggja fram frumvarp til laga þar sem gerðar eru töluverðar breytingar á regluverkinu, breytingar sem hún telji til góðs og atvinnulífið hafi fagnað.

„Þar er ég vissulega að taka undir sjónarmið atvinnulífsins og Samkeppniseftirlitið var ekki að öllu leyti sátt við þær tillögur sem þar koma fram," segir Þórdís Kolbrún í viðtalinu.

„Stundum hefur mér þó fundist snúið að taka þátt í þessari umræðu, því að Samkeppniseftirlitið er mjög sjálfstætt og ráðherra stígur ekki inn í einstök mál. Mörg þessara mála eru mjög huglæg og matskennd, þetta er ekki bara hrein lögfræði heldur líka hagfræði og nýjar skilgreiningar í breyttum heimi þar sem landamæri hverfa og svo framvegis svo að lagaumgjörðin getur ekki tekið á öllum þáttum. Ég myndi vilja aukna og þroskaða umræðu um samkeppnismál og af hverju við erum með samkeppniseftirlit. Ég er þó þeirrar skoðunar að Samkeppniseftirlitið geti unnið betur með atvinnulífinu og þá sérstaklega sinnt leiðbeiningarhlutverki sínu í auknum mæli. Ég hef reynt að beita mér fyrir hvoru tveggja."

Þá er hún jafnframt spurð að því hvort henni finnist eðlilegt að fólk úr atvinnulífinu forðist að óska eftir leiðbeiningum frá Samkeppniseftirlitinu og þess heldur að gagnrýna það af ótta við einhvers konar hefndir?

„Það er vont ef rétt er. Þannig viljum við að sjálfsögðu ekki hafa það og það sama mætti segja um hvaða ríkisstofnun sem er," segir Þórdís Kolbrún aðspurð um þetta.

Tímaritið Þjóðmál kemur út ársfjórðungslega og er hægt að skrá sig í áskrift á vefnum Thjodmal.is .

Þjóðmál vor 2020
Þjóðmál vor 2020
© Aðsend mynd (AÐSEND)