Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur heimilað kaup Árvakurs og 365 á Póstmiðstöðinni. Samruninn er háður vissum skilyrðum sem SKE og samrunaaðilar hafa gert sátt um. Þetta kemur fram í nýbirtri ákvörðun SKE .

Í júlí síðastliðnum var greint frá því að Árvakur og 365 hf. hygðust kaupa Póstmiðstöðina ehf. Kaupverðið var ekki gefið upp og munu eignarhlutföllin koma til með að vera sú að Árvakur fari með 51% og 365 hf. fari með 49%.

Samkeppniseftirlitið hefur haft kaupin til skoðunar, en með samrunanum hyggjast samrunaaðilar sameina dreifikerfi sín fyrir dagblöð, tímarit og fjölpóst undir fyrirtækinu Póstmiðstöðinni sem þeir hyggjast reka sem dótturfélag.

Reifun af ákvörðun SKE, sem birtist á vefsvæði eftirlitsins , má sjá hér að neðan:

Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Árvakurs hf. og 365 hf. á Póstmiðstöðinni. Tilkynning um samrunann barst með bréfi dags. 13. júlí 2018 en með bréfinu fylgdi svokölluð lengri samrunaskrá, sbr. 5. mgr. 17. gr. a. samkeppnislaga nr. 44/2005 og reglur nr. 684/2008 um tilkynningu samruna með síðari breytingum.

Árvakur er útgáfufélag Morgunblaðsins og rekur fréttavefinn mbl.is auk fleiri vefmiðla, s.s. Finna.is, blog.is, Iceland Monitor. Dótturfélag Árvakurs er Landsprent ehf. sem er sérhæfð blaðaprentsmiðja sem býður upp á prentun og dreifingu ásamt fjölbreyttri þjónustu við útgáfu á kynningar- og auglýsingaefni. Þá er Edda-útgáfa ehf., sem gefur út Andrésblöð og tengt efni, dótturfélag Árvakurs. Einnig rekur Árvakur útvarpsstöðvarnar K100 og Retro 895. 365 er að meginstofni eignarhaldsfélag, og eru helstu eignir félagsins 100% hlutur í Torgi, rekstrarfélagi Fréttablaðsins og tengdra miðla, og tæplega 11% hlutur í Sýn hf.

Póstmiðstöðin annast dreifingu á bókum, blöðum, vörum og öðru efni, kaup, sölu og rekstur fasteigna, lánastarfsemi og annan skyldan rekstur. Póstmiðstöðin á tvö dótturfélög, Póstdreifingu og Póstþjónustuna. Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Árvakurs hf. og 365 hf. á Póstmiðstöðinni ehf. Samruninn er háður skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið og samrunaaðilar hafa gert sátt um.