Samkeppniseftirlitið (SKE) hefur heimilað samruna kjötafurðastöðvanna Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða með skilyrðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SKE þar sem segir að samrunaaðilar hafi brugðist við mati eftirlitsins „á skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni með því að setja fram tillögur að skilyrðum sem væru til þess fallnar að mæta áhyggjum Samkeppniseftirlitsins af skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni, en gerðu um leið samrunaaðilum kleift að framkvæma samrunann og ná markmiðum hans.“

Með skilyrðunum, sem felast í sátt samrunaaðila og SKE, skuldbinda kjötafurðastöðvarnar sig til að grípa til eftirfarandi aðgerða:

Aðgerðir til að efla og tryggja samningsstöðu bænda

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að standa ekki í vegi fyrir því að bændur færi viðskipti sín frá sameinuðu félagi til keppinauta þess. Jafnframt er tryggður réttur bænda til að semja um afmarkaða þjónustu við sameinað fyrirtæki, s.s. slátrun, en aðra þjónustu við þriðju aðila, s.s. vinnslu.

Aðgerðir er varða verðlagningu einstakra þjónustuþátta

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til þess að aðgreina í bókhaldi sínu slátrun og vinnslu og lúta skorðum og reglum við verðlagningu á slátrun og annarri nánar skilgreindri þjónustu og í tiltekinn tíma. Þannig njóti bændur hagræðis sem sameinað fyrirtæki ætlar að ná og þurfi ekki að sæta verðhækkunum sem óhjákvæmilega geta leitt af samkeppnishamlandi samrunum. Skilyrðin eru jafnframt til þess fallin að styðja við samningsforræði bænda og þar með styrkja það aðhald sem þeir geta beitt gagnvart kjötafurðastöðvum.

Aðgerðir sem rjúfa eignatengsl við minni kjörafurðastöðvar með sölu á eignarhlut til bænda

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að selja eignarhluti sína í Fjallalambi annars vegar og Sláturfélagi Vopnfirðinga hins vegar. Skulu hlutirnir seldir til bænda, eða félaga í meirihlutaeigu bænda. Er sölunni settur tiltekinn frestur, sem háður er trúnaði.

Aðgerðir til að koma í veg fyrir fækkun keppinauta og viðsemjenda bænda

Kjarnafæði hefur átt í viðskiptum við kjötafurðastöðvarnar B. Jensen og Sláturfélag Vopnfirðinga. Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að eiga í áframhaldandi viðskiptum í tiltekinn tíma við B. Jensen og Sláturfélag Vopnfirðinga. Þessi viðskipti eru mikilvæg fyrir áframhaldandi rekstur þessara fyrirtækja, sem ella kynnu að hverfa af markaði. Miðar framangreind skuldbinding að því að fyrirtækin hafi ráðrúm til að bregðast við breyttum markaðsaðstæðum og starfa áfram sem sjálfstæðir keppinautar.

Aðgerðir til að stuðla að samkeppnislegu sjálfstæði sameinaðs fyrirtækis

Sameinað fyrirtæki skuldbindur sig til að setja sér setja sér samkeppnisstefnu, grípa til aðgerða til að tryggja eftirfylgni við sáttina í daglegri starfsemi, tryggja óhæði gagnvart keppinautum á vettvangi stjórnar og lykilstarfsmanna og halda skrá yfir öll samskipti við keppinauta. Eru þessar aðgerðir til þess fallnar að stuðla að því að sameinað fyrirtæki virði bannreglur samkeppnislaga og sporna við tjóni sem leitt getur af aukinni samþjöppun í greininni.

Sáttin verji hagsmuni bænda og neytenda

„Það er hagur íslenskra neytenda og bænda að virk samkeppni ríki á mörkuðum fyrir slátrun gripa og í heildsölu og vinnslu kjötafurða. Kannanir á meðal bænda gefa til kynna víðtækan stuðning við aðgerðir til þess að standa vörð um samkeppni á þessu sviði.

Það er mat Samkeppniseftirlitsins að sátt þess við samrunaaðila verji hagsmuni bænda og neytenda og geri sameinuðu fyrirtæki jafnframt kleift að eflast og dafna á grunni virkrar samkeppni og aðhalds af hendi bænda," er haft eftir Páli Gunnari Pálssyni, forstjóra SKE, í tilkynningu.