Tillaga að rammaskipulagi fyrir uppbyggingu í Skeifunni verður kynnt á fundi borgarráðs síðastliðinn fimmtudag.Skipulagið, sem verður að öllum líkindum vísir að því deiliskipulagi sem verður teiknað upp fyrir svæðið, gerir ráð fyrir uppbyggingu 750 íbúða í fjögurra til sex hæða húsum.

Að meginstefnu er gert ráð fyrir að uppbyggingin verði til viðbótar við þau hús sem fyrir eru í Skeifunni. Í rammaskipulaginu er einnig gert ráð fyrir lóðabreytingum til að liðka fyrir breytingum á samgöngumannvirkjum á svæðinu, þar sem áhersla verður á að bæta aðstöðu gangandi og hjólandi. Að því gefnu að sátt verði um skipulagið má gera ráð fyrir að uppbygging geti hafist í lok næsta árs.