Á þriðja degi viðskipta með hlutabréf í Skeljungi í kauphöllinni lækkaði gengi hlutabréfa félagsins um 3,08% í 172 milljóna viðskiptum.

Gengi bréfanna er, þegar þetta er skrifað 6,61 krónur, en útboðsgengið í nóvember var 6,9 krónur.

Hefur gengi bréfa félagsins því lækkað um 4,2% frá því að viðskipti hófust með bréf félagsins á föstudag .