Skeljungur hefur fest kaup á þriðjungshlut í Wedo ehf., sem á og rekur Heimkaup.is, Hópkaup.is og Bland.is.

Kaupin fóru fram með 280 milljón króna hlutafjáraukningu sem nýta á til að fjármagna frekari vöxt hjá félaginu.

Samhliða kaupunum fær Skeljungur rétt til að skrá sig fyrir 17% hlut til viðbótar, sem nýtanlegur yrði næstu þrjú árin. Nýting réttarins myndi tryggja 51% eignarhlut Skeljungs í félaginu.

Tekjur Wedo hafa vaxið ört á undanförnum árum og er áætluð velta ársins 2017 um 1,1 milljarður króna sem er aukningu um 47% frá síðasta ári.

„Netverslun er sú tegund viðskipta sem vex hvað hraðast í heiminum með breyttri neysluhegðun almennings og þar er Ísland engin undantekning. Við teljum tækifæri felast í samstarfi Skeljungs og Wedo, sem komi báðum aðilum til góða. Skeljungur er sífellt að leita leiða til að mæta þörfum viðskiptavina sinna og styrkja sölustaði félagsins. Í tilfelli Wedo þá höfum við möguleika á að eignast meirihluta í félaginu, sjáum við tækifæri til nánara samstarfs, og stíga þannig af meiri festu inn á þennan ört vaxandi markað,“ segir Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs í tilkynningu.

Guðmundur Magnason, forstjóri Wedo segir vöxt félagsins hafa verið mikinn að undanförnu. „Fjárfesting Skeljungs og aðkoma félagsins að Wedo kemur sér vel í þeirri uppbyggingu sem stendur fyrir dyrum og gerir okkur kleift að gera enn betur í samkeppni um hylli neytenda. Að auki eru kaup Skeljungs á hlut í félaginu mikil viðurkenning fyrir það góða starf sem starfsfólk Wedo hefur unnið undanfarin ár,” segir Guðmundur.