Skeljungur hefur lækkað verð á bensíni um 3 krónur og dísil olíu um 2 krónur í dag á öllum stöðvum Orkunnar. Ástæðan er lækkandi heimsmarkaðsverð er fram kemur í fréttatilkynningu.

Eftir lækkunina er lægsta verð Orkunnar á bensíni 214,7 krónur og dísil 215,7 krónur hjá Orkunni X í Hraunbæ, Reykjavík, og á Skemmuvegi, Kópavogi.