Skeljungur hf. hefur samið við Rekstrarfélag Tíu ellefu ehf. um að annast rekstur tólf verslana við bensínstöðvar Shell og Orkunnar í þeim tilgangi að sinna enn betur þörfum viðskiptavina Skeljungs fyrir hvers kyns nauðsynjavörur til heimilisins og matvöru fyrir fólk á ferðinni. Fram kemur í fréttatilkynningu að samningurinn sé gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Samstarfið mun ná til reksturs ellefu verslana á höfuðborgarsvæðinu og einnar á Akranesi. Skeljungur mun áfram annast eldsneytissölu, veita viðskiptavinum þjónustu á sjálfsafgreiðsluverði á plani verslana og óbreytt vöruframboð verður af olíum og bílavörum.  Með samstarfinu verður aukin áhersla lögð á skyndirétti, gott kaffi, úrval af hollusturéttum auk helstu nauðsynjavara fyrir heimlið og sumarbústaðinn.

Starfsmenn þessara verslana eru um eitt hundrað talsins og munu  þeir starfa þar áfram en nú undir merkjum 10 -11.  Fyrir rekur 10-11 verslanir við bensínstöð Orkunnar á Dalvegi og Shell á Miklubraut.

Samstarf olíufélaga við þægindaverslanir er þekkt víða erlendis, en til að mynda hefur Shell starfað með 7-eleven á sambærilegan hátt í þó nokkurn tíma á Norðurlöndunum með góðum árangri.

Valgeir Baldursson forstjóri Skeljungs segir að með þessari ráðstöfun sé Skeljungur að styrkja enn frekar þjónustustöðvar sínar og telur hann 10-11 vera sterkan samstarfsaðili til þess.  Skeljungur bindur miklar vonir við þau tækifæri sem samstarfið skapar og það er stór liður í áformum varðandi uppbyggingu og þróun á fyrirtækinu.

Skeljungur starfrækir sextíu og fimm bensínstöðvar undir merkjum Shell og Orkunnar og hjá fyrirtækinu starfa um þrjú hundruð starfsmenn, að framangreindum verslunum meðtöldum.  Shell leggur áherslu á gæði eldsneytis og þjónustu við viðskiptavini, en Orkan býður ávalt lægsta eldsneytisverðið.

10-11 er elsta og þekktasta 24 stunda verslun landsins og hefur á undanförnum tuttugu árum innleitt margar nýjungar til aukinna þæginda fyrir almenning.  10 -11 rekur fyrir tuttugu og tvær verslanir og hjá félaginu starfa um tvö hundruð starfsmenn.