Sprotafyrirtækið Skema, sem sérhæfir sig í forritunarkennslu fyrir börn, unglinga og kennara, kynnir nú drög að viðskiptamódeli sínu á Bandaríkjamarkaði undir merkjum reKode Education.
Fyrirtækið mun kynna verkefnið fyrir fjárfestum á Seed For um ráðstefnunni í bæði New York og San Francisco á næstu tveimur vikum og stefnir á að hefja starfsemi vestanhafs síðar á þessu ári.
Boð um að taka þátt í Seed Forum í Bandaríkjunum barst eftir þátttöku fyrirtækisins á sömu samkomu hérlendis nú nýverið. Eins og greint var frá fyrr á árinu var Skema meðal fyrirtækja á lista Forbes yfir tíu fyrirtæki til að fylgjast með árið 2013.