Skífan (nú Dagur Group) þarf að greiða 65 milljónir króna í stjórnvaldssekt því Áfrýjunarnefnd staðfesti ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að Skífan sé sek um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína.

Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 16. júní sl. var Skífan fundin sek um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið þannig gegn bannákvæðum samkeppnislaga. Þetta gerði Skífan með gerð ólögmætra samninga við Hagkaup um sölu á hljómdiskum og tölvuleikjum, annars vegar á árinu 2003 og hins vegar á árinu 2004, sem báðir fela í sér sk. einkakaup og samkeppnishamlandi afslætti. Með einkakaupum í þessu samhengi er átt við að Hagkaup skuldbundu sig til að kaupa í heildsölu tiltekið hátt hlutfall af öllum umræddum vörum, eingöngu af Skífunni. Með samningunum voru keppinautar Skífunnar í heildsölu á hinum tilgreindu vörum nánast útilokaðir frá viðskiptum við Hagkaup sem er stór seljandi á m.a. hljómdiskum.

Með þessum aðgerðum ítrekaði Skífan brot sitt á samkeppnislögum sem fjallað var um í ákvörðun samkeppnisráðs frá árinu 2001 og hæstaréttardómi frá árinu 2004. Var þetta nýja brot Skífunnar umfangsmeira en eldra brot fyrirtækisins.

Dagur Group skaut þessu máli til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem kvað upp sinn úrskurð í gær. Í úrskurði áfrýjunarnefndar er ákvörðun Samkeppniseftirlitsins staðfest. Telur nefndin að brot Skífunnar hafi verið bæði augljós og alvarleg og að fyrirsvarsmönnum fyrirtækisins hafi mátt vera ljóst að að umræddir samningar færu gegn samkeppnislögum og ákvörðun samkeppnisráðs frá 2001. Var staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Skífunni beri að greiða 65 milljónir kr. í stjórnvaldssekt vegna þessara brota.