Skífan ehf., sem rekur samnefndar verslanir, skilaði 15,9 milljóna króna tapi í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi fyrirtækisins. Reikningurinn er samandreginn, en samkvæmt honum skilaði félagið 244.725 króna tapi árið 2011.

Eignir félagsins námu um síðustu áramót 73,3 milljónum króna og eigið fé nam 5,7 milljónum króna.

Eigandi Skífunnar er Móberg ehf., sem er að stærstum hluta í eigu Skorra Rafns Rafnssonar, framkvæmdastjóra Bland.is.