Bergur VE landaði á Seyðisfirði í gær. Skipið var nánast fullt eftir að hafa verið þrjá sólarhringa á veiðum. Skipstjóri í veiðiferðinni var Jón Sigurgeirsson en hann var að fara sinn fyrsta túr sem skipstjóri.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi stuttlega við Jón um túrinn.

„Það gekk bara nokkuð vel. Við erum með um 60 tonn og aflinn er mest karfi og ufsi og svo er einnig dálítið af þorski og ýsu. Ég er nokkuð sáttur við minn fyrsta túr í skipstjórastóli. Ég hef verið stýrimaður á Bergi frá áramótum en hef verið á sjó í yfir 20 ár. Túrinn byrjaði á því að við reyndum við karfa í Skeiðarárdýpinu en veiddum síðan mest í Lónsdýpinu og Berufjarðarálnum. Veðrið var heldur leiðinlegt allan túrinn og talsvert meiri vindur og meiri sjór en spáð var. Við gátum dregið tvö troll til að byrja með en veðrið kom fljótt í veg fyrir það og þá þurfti að notast við eitt,“ segir Jón.

Bergur hélt til veiða á ný strax að löndun lokinni.