Skilanefnd Glitnis hefur með samkomulagi við Milestone ehf. í dag gengið að veðum í öllu hlutafé í Moderna Finance AB dótturfélagi Milestone ehf. í Svíþjóð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skilanefnd Glitnis en þar segir að með þessu færast yfirráð yfir íslenskum dótturfélögum Moderna Finance, Sjóvá, Askar Capital og Avant, til skilanefndar Glitnis.

Þá verður áfram unnið að endurskipulagningu félaganna og er samningurinn við skilanefndina liður í að tryggja rekstur þeirra til frambúðar. Fram kemur í tilkynningunni að samningurinn mun ekki hafa áhrif á daglegan rekstur íslensku félaganna.

Samningurinn hefur ekki áhrif á söluferlið sem var hafið á erlendum eignum Moderna Finance AB.

Árni Tómasson formaður skilanefndar Glitnis segir í tilkynningunni að yfirtaka á hlutafé Moderna Finance AB sé eðlilegt framhald á vinnu skilanefndarinnar, eftir að áætlanir um fjárhagslega endurskipulagningu Moderna Finance samstæðunnar náðu ekki fram að ganga.