Í tilefni af fréttatilkynningu Baugs Group til fjölmiðla fyrr í dag vill skilanefnd Glitnis banka hf. taka fram að hún stendur í einu og öllu við málatilbúnað sinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og hafnar alfarið athugasemdum sem fram komu í fréttatilkynningu Baugs Group hf. í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skilanefnd Glitnis.

„Þær skýringar sem Baugur Group hf. setur nú fram eru að mati skilanefndar hvorki í samræmi við raunveruleikann né fyrri skýringar Baugs Group hf. á sömu atriðum,“ segir í tilkynningunni.

„Glitnir banki hf. leitaði sérstaklega eftir skýringum á misræmi á verðmati eigna á fundi með kröfuhöfum hinn 27. febrúar síðast liðinn. Þá voru skýringar ekki tiltækar. Síðar fram komnar skýringar Baugs Group hf. á misræminu eru ekki í samræmi við þær sem framkoma í fréttatilkynningu Baugs Group hf. fyrr í dag.“

Þá kemur fram í tilkynningunni að Skilanefnd Glitnis undrast áróðurskennda yfirlýsingu Baugs Group hf. sem send hefur verið fjölmiðlum og vísar henni alfarið á bug.