Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. hefur uppfært mat frá því í febrúar á þessu ári á eignum bankans til aprílloka s.l. Samkvæmt uppfærða sundurliðaða eignamatinu, sem unnið er sjálfstætt af sérfræðingum bankans, er gert ráð fyrir að um 1.100 milljarðar kr. fáist fyrir eignir upp í kröfur á hendur bankanum. Miðað við að innlánskröfur, sem eru alls um 1.330 milljarðar kr. og að langstærstum hluta vegna Icesave- innlánsreikninganna í Bretlandi og Hollandi, séu forgangskröfur, þýðir þetta að um 83% fást upp í forgangskröfur m.v. stöðuna 30. apríl sl.

Í tilkynningu frá skilanefnd kemur fram að forsendur fyrir eignamatinu eru að engar eignir Landsbanka Íslands hf. séu seldar á hrakvirði og að útlán, en útlánasöfn eru langstærsti hluti eigna bankans, séu innheimt samkvæmt skilmálum þeirra (“hold to maturity”) eins og greiðslugeta skuldara/greiðenda og settar tryggingar duga til. Bent er sérstaklega á að endanlegt virði eigna bankans er háð mikilli óvissu, m.a. vegna óþekktrar þróunar efnahagslegra þátta bæði innanlands og utan, sem getur haft áhrif á framtíðarvirði undirliggjandi eigna.

Gera ráð fyrir að fá 284 milljarða frá Nýja Landsbankanum

Heildarvirði eigna Landsbanka Íslands hf. þann 30. apríl 2009 er metið 816 milljarðar kr. Gert er ráð fyrir að við þá fjárhæð bætist 284 milljarða kr. greiðsla frá NBI hf., sem er gagngjald fyrir þær eignir sem fluttar voru yfir til NBI hf. í byrjun október sl. Þessi fjárhæð er háð mikilli óvissu þar sem samningum, sem nú standa yfir um virði og fyrirkomulag þessara eigna er ekki lokið. Þá er vakin athygli á að öllum tölum ber að taka með varúð vegna mikilla breytinga á gengi gjaldmiðla, sérstaklega á gengi íslensku krónunnar gagnvart helstu erlendu gjaldmiðlunum.