Skilanefnd Landsbanka Íslands hefur nú leyst til sín 23,84% hlut Langflugs ehf, sem er í eigu Finns Ingólfssonar, í Icelandair Group.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skilanefnd Landsbankans til Kauphallarinnar en skilanefndin leysir hlutabréfin til sín á genginu 4,5 fyrir hvern hlut, sem er síðasta skráða viðskiptagengið með bréf í félaginu.

Hlutabréfin sem Skilanefnd Landsbankans leysti til sín voru til tryggingar lánum vegna hlutabréfakaupa í Icelandair Group en fram kemur að aðgerðin hefur engin áhrif á daglegan rekstur félagsins.