Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. hefur vísað máli til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra er varðar óútskýrða millifærslu inn á persónulegan bankareikning starfsmanns bankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skilanefndinni en millifærslan átti sér stað í byrjun október.

Í tilkynningunni kemur fram að málið kom upp í eftirlitskerfum bankans og var rannsakað af óháðum endurskoðendum sem ráðnir hafa verið af skilanefndinni til að rannsaka viðskipti og fjármagnshreyfingar í tengslum við hrun fjármálakerfisins á Íslandi.

„Skilanefnd tók málið föstum tökum frá upphafi,“ segir í tilkynningunni.

„Í samræmi við verkferla var haft samráð við Fjármálaeftirlitið og í kjölfarið var því vísað til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar er það mat skilanefndar að ekkert fjárhagslegt tjón hafi orðið vegna þessa máls.“

Starfsmaðurinn hefur látið af störfum.