Skilanefnd Landsbankans á um 293 milljarða króna í reiðufé, þar af 50 milljarða hér á landi.

Þetta kom fram á blaðamannafundi skilanefndarinnar fyrir skömmu.

Þar var fjallað um málshöfðun skilanefndarinnar á hendur fyrrverandi stjórnendum bankans sem fjallað var um fyrr í dag.

Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson fyrrverandi bankastjórar bankans eru krafðir um 37 milljarða hvor vegna meintrar vanrækslu í rekstri bankans fyrir hrun. Þá verður Elínu Sigfúsdóttur fyrrverandi forstöðumanni fyrirtækjasviðs og fleiri stjórnendum einnig stefnt. Elín er krafin um 17 milljarða króna, að því er fram kemur fram á Vísi.