Eins og fram kom fyrr í kvöld hefur Fjármálaeftirlitið (FME) ákveðið að taka yfir vald hluthafafundar Glitnis banka hf. og víkja félagsstjórn í heild sinni frá störfum þegar í stað.

FME hefur skipað skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar þegar í stað.

Í skilanefnd hafa verið skipaðir Árni Tómasson, Heimir Haraldsson, Steinunn Guðbjartsdóttir, Sverri Örn Þorvaldsson og Ágúst Hrafnkelsson.