Eins og kunnugt er tók Fjármálaeftirlitið (FME) yfir rekstur Kaupþings banka í nótt og skipaði skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjórnar Kaupþings.

Eftirfarandi aðilar hafa verið skipaðir í skilanefnd:

Finnur Sveinbjörnsson, hagfræðingur.

Knútur Þórhallsson, löggiltur endurskoðandi.

Bjarki H. Diego, hrl.

Guðný Arna Sveinsdóttir, viðskiptafræðingur.

Steinar Þór Guðgeirsson, hrl.