Eins og greint var frá í morgun hefur Fjármálaeftirlitið sent skilanefnd inn í Landsbankann til að taka yfir stjórn bankans.

Stjórnin hefur þar með verið sett af en samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins eru bankastjórarnir við störf.

Eftirfarandi aðilar hafa verið skipaðir í skilanefnd:

Ársæll Hafsteinsson, hdl., Einar Jónsson, hdl., Lárentsínus Kristjánsson, hrl., Lárus Finnbogason, lög. endurskoðandi, Sigurjón Geirsson, lög. endurskoðandi.

Inngripin byggjast á heimild í neyðarlögunum sem Alþingi samþykkti í gær.