Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur í dag skipað í embætti fimm héraðsdómara vegna fjölgunar dómara og í eitt embætti vegna lausnar dómara frá embætti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu en ráðherra skipaði Áslaugu Björgvinsdóttur, Ásmund Helgason og Ragnheiði Harðardóttur sem skulu eiga fast sæti dómara við héraðsdóm Reykjavíkur, Ragnheiði Thorlacius og Sigurð Gísla Gíslason sem skulu eiga fast sæti við héraðsdóm Suðurlands og Jón Höskuldsson sem skal eiga fast sæti við héraðsdóm Reykjaness.

Öll eru þau skipuð frá og með 15. maí nk.

Þá hefur ráðherra jafnframt sett Ingiríði Lúðvíksdóttur í embætti héraðsdómara við héraðsdóm Reykjavíkur, frá og með 15. maí nk. til og með 31. ágúst 2012 í leyfi skipaðs dómara.

Umsóknarfrestur um öll embættin rann út þann 25. febrúar síðastliðinn og sóttu alls 37 um ofangreind sex embætti auk þess sem þrettán umsóknir bárust um setningu við héraðsdóm Reykjavíkur vegna leyfis skipaðs dómara.