Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að setja á laggirnar sérstaka nefnd um málefni flóttafólks og innflytjenda. Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, innanríkisráðherra og utanríkisráðherra munu eiga fast sæti í nefndinni. Þá munu mennta- og menningarmálaráðherra og heilbrigðisráðherra taki sæti í nefndinni þegar fjallað er sérstaklega um málefni á þeirra ábyrgðarsviðum. Aðrir ráðherrar taka sæti á fundum nefndarinnar eftir því sem tilefni er til. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

„Markmiðið er að samræma starf ráðuneyta og stofnana í umræddum málaflokkum og meta hvernig framlag Íslands nýtist best til að ná markmiðum um mannúðaraðstoð og aðstoð við flóttamenn, hælisleitendur og innflytjendur og samfélagsmál tengd málaflokknum,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að fyrir liggi að málefni flóttamanna og hælisleitenda sé og verði viðvarandi verkefni hér á landi sem og hjá fjölda annarra þjóða. Mikilvægt sé að standa vörð um það vandaða fyrirkomulag sem byggt hafi verið upp hér á landi við móttöku kvótaflóttamanna og jafnframt að samþætta það fyrirkomulag annars vegar og umgjörð hælisleitenda hins vegar.

Þá sé mikilvægt að jafnframt verði metnir möguleikar Íslands til þess að auka aðkomu sína að starfi stofnanna Sameinuðu þjóðanna og borgarasamtaka sem starfa á sviði neyðar- og mannúðaraðstoðar á vettvangi. Auk þess sé mikilvægt að meta möguleika á samstarfi við önnur ríki, til dæmis Norðurlöndin, á sviði neyðar- og mannúðaraðstoðar.

Fyrsti fundurinn verði boðaður í þessari viku

„Það var mikil og góð umræða um þetta mikilvæga málefni í ríkisstjórninni í morgun og ljóst að um er að ræða mál sem ráðherrar og ríkisstjórnin í heild tekur mjög alvarlega. Vandinn er ekki nýtilkominn og við fjölluðum um þá miklu vinnu sem ráðuneyti og stofnanir hafa unnið á þessu sviði á síðustu misserum,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.

Vinna við undirbúning fyrsta fundar ráðherranefndarinnar er hafin og ég gerir ráð fyrir að hægt verði að boða til fyrsta fundarins í þessari viku. Við ætlum okkur að vinna hratt og vel að því að kortleggja þróunina að undanförnu svo okkur verði kleift að bregðast sem best við þessum mikla vanda.“, segir Sigmundur.