Forsætisnefnd Alþingis hefur gengið frá skipan þriggja manna ráðgefandi nefndar sem tekur til meðferðar erindi sem forsætisnefnd beinir til hennar um meint brot á siðareglum fyrir alþingismenn á Alþingi Íslendinga.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis, verður formaður nefndarinnar, en einnig skipa nefndina þau Hafsteinn Þór Hauksson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, og Salvör Nordal, sérfræðingur við Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.

Skipunartími nefndarinnar er fimm ár að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Alþingi.

„Nefndinni er ætlað að láta í ljós álit sitt á því hvort þingmaður hafi með hátterni sínu brotið gegn hátternisskyldum sínum og meginreglum um hátterni, sbr. 5. gr. siðareglna fyrir alþingismenn," segir í tilkynningunni.

„Nefndin er forsætisnefnd jafnframt til ráðgjafar um öll málefni sem falla undir reglur þessar og aðstæður sem upp kunna að koma við framkvæmd þeirra.

Forseti Alþingis gerir tillögu um formann nefndarinnar og skal hann hafa þekkingu á störfum Alþingis og alþingismanna. Tveir nefndarmenn skulu tilnefndir af samstarfsnefnd háskólastigsins.

Skal annar þeirra hafa embættis- eða meistarapróf í lögfræði og hinn hafa meistarapróf í heimspeki eða hagnýtri siðfræði og þekkingu á siðareglum.“