Ólöf Nordal, Ingibjörg Ingvadóttir, Ragnar Árnason, Jón Helgi Egilsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Björn Valur Gíslason og Auður Hermannsdóttir skipa nýkjörið bankaráð Seðlabanka Íslands.

Kjörið var í ráðið á Alþingi í gær. Greint er frá skipan ráðsins á vefsíðu Seðlabankans.

Varamenn eru Ingvi Hrafn Óskarsson, Linda Björk Bentsdóttir, Heiðrún Lind Marteinsdóttir, Leó Löve, Sigrún Elsa Smáradóttir, Hildur Traustadóttir og Sunna Jóhannsdóttir.