Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað nefnd til ráðuneytis um hvernig best megi standa að og greiða fyrir þróun heimavinnslu og sölu afurða hjá bændum.

Nefndinni er ætlað að hafa náið samráð við stjórn Beint frá býli – Félags heimavinnsluaðila, sem tók til starfa á hlaupársdag.

Nefndina skipa:

Jón Gunnarsson, alþingismaður og formaður nefndarinnar

Guðmundur H. Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Matís ohf.

Ólöf Hallgrímsdóttir bóndi, Vogum í Mývatnssveit

Sigurður Jóhannesson, frkvstj. SAH Afurða, Blönduósi

Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður matvælaöryggis og neytendamála hjá Matvælastofnun

Í tilkynningu frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu kemur fram að ráðherra segir að glöggt megi merkja að áhugi bænda fyrir heimavinnslu afurða aukist hratt um þessar mundir. Þarna felist vaxtarbroddur sem vert sé að hlúa að, því hvers kyns nýsköpun af þessu tagi geti orðið greininni lyftistöng. Nefndin eigi að liðka fyrir þessu og stuðla að árangursríku samstarfi hins opinbera og hagsmunaaðilanna.