Slitastjórn fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf. (áður Icebank) var skipuð af Héraðsdómi Reykjavíkur þann 20.maí sl.

Í slitastjórninni sitja Andri Árnason hrl., Berglind Svavarsdóttir hrl. og Tómas Jónsson hrl., sem jafnframt er aðstoðarmaður í greiðslustöðvun.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að Tómas tekur sjálfkrafa sæti í slitastjórn samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki.

Áslaug Björgvinsdóttir hefur látið af störfum í skilanefnd Sparisjóðabankans.

Skilanefndina skipa því eftirleiðis eftirfarandi þrír einstaklingar: Erling Tómasson löggiltur endurskoðandi og formaður nefndarinnar, Hjördís Edda Harðardóttir hrl. og Jón Ármann Guðjónsson hdl.