Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, skipaði á dögunum tvo starfshópa sem falið er að vinna tillögur að aðgerðum til úrbóta vegna ábendinga sem fram komu í skýrslu um aflandsumsvif Íslendinga. Þetta kemur fram í frétt fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

„Fyrri starfshópnum er falið að kanna og greina nánar niðurstöður skýrslunnar um  milliverðlagningu í utanríkisviðskiptum, þ.m.t. faktúrufölsun, með tilliti til mögulegra skattundanskota og nýtingar skattaskjóla í því sambandi,“ segir í tilkynningunni. Starfshópnum er ætlað að skila skýrslu til ráðherra 1 maí næstkomandi, ásamt tillögum að aðgerðum sé þess þörf.  Eftirfarandi hafa verið skipuð í starfshópinn:

  • Anna Borgþórsdóttir Olsen, fjármála- og efnahagsráðuneyti, formaður.
  • Andri Egilsson, tilnefndur af Seðlabanka Íslands,
  • Auður Ólína Svavarsdóttir, tilnefnd af Hagstofu Íslands,
  • Jóhanna Lára Guðbrandsdóttir, tilnefnd af tollstjóra,
  • Margrét Ágústa Sigurðardóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Sigurður H. Ingimarsson, tilnefndur af skattrannsóknarstjóra og
  • Sigurður Jensson, tilnefndur af ríkisskattstjóra.

Seinni hópurinn kannar og greinir nánar umfang og áhrif skattaundanskota og skattsvika á íslenskan þjóðarbúskap, þ.m.t afkomu hins opinbera ásamt því að gera tillögur að því hvernig megi minnka svarta hagkerfið og þar með skattundanskotum og skattsvikum. „Í því samhengi þarf einnig að horfa til peningaþvættis sem oftar en ekki er fylgifiskur skattundanskota og skattsvika. Jafnframt er starfshópnum falið að skoða hvort takmarka eigi notkun reiðufjár við greiðslu launa og kaup á dýrum hlutum með hliðsjón af lögum og reglum nágrannaríkjanna,“ er einnig tekið fram. Starfshópurinn skal ljúka störfum eigi síðar en 15. maí næstkomandi með skýrslu til ráðherra ásamt tillögum að úrbótum sé þeirra þörf.

Eftirfarandi hafa verið skipuð í starfshópinn:

  • Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri, formaður.
  • Ása Ögmundsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Björn Rúnar Guðmundsson, tilnefndur af Hagstofu Íslands,
  • Elín Guðjónsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Guðbjörg Eva Baldursdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Helga Rún Hafliðadóttir, tilnefnd af skattrannsóknarstjóra,
  • Jenný Stefanía Jensdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðherra,
  • Jón Bjarni Steinsson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðherra,
  • Ólafur Hauksson, tilnefndur af innanríkisráðuneyti,
  • Ragnhildur D. Þórhallsdóttir, tilnefnd af ríkisskattstjóra og
  • Sigríður Olgeirsdóttir, tilnefnd af fjármála- og efnahagsráðherra.