Árni M. Mathiesen, settur dómsmálaráðherra, skipaði í dag Þorstein Davíðsson, aðstoðarsaksóknara og deildarstjóra við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, héraðsdómara frá og með 1. janúar 2008.
Hann mun verða með 75% starfsskyldur við héraðsdóm Norðurlands eystra og 25% við héraðsdóm Austurlands og hafa starfsstöð við héraðsdóm Norðurlands eystra.
Þorsteinn var áður aðstoðarmaður dómsmálaráðherra.
Aðrir umsækjendur um embættið voru:
Guðmundur Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður
Halldór Björnsson, aðstoðarmaður hæstaréttardómara
Pétur Dam Leifsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands og félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri
Ragnheiður Jónsdóttir, löglærður fulltrúi sýslumannsins á Húsavík