Stephen Jack, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. hefur látið af störfum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum þar sem bankinn þakkar Stephen fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar.

Jakob Ásmundsson hefur tekið við sem framkvæmdarstjóri rekstrar og þar á meðal fjármála. Jakob var áður framkvæmdarstjóri áhættustýringar Straums.