Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir komið að því að samkeppnisyfirvöld íhugi að skipta upp Mjólkursamsölunni.

Neytendur taki höggið

„Yfirlýsingar forsvarsmanna MS um að neytendur verði einfaldlega látnir taka höggið af refsingu samkeppnisyfirvalda fyrir lögbrot fyrirtækisins hljóta líka að vekja fólki ugg. Það að menn skuli leyfa sér að tala svona sýnir í raun í hversu yfirgnæfandi einokunarstöðu MS er; þar hafa menn engar áhyggjur af því að veikja samkeppnisstöðu sína með því að velta stjórnvaldssekt yfir á neytendur. Við hljótum að vera komin að þeim tímapunkti að samkeppnisyfirvöld íhugi að nýta heimildir sínar lögum samkvæmt til að skipta upp einokunarrisanum á mjólkurmarkaði,“ segir Ólafur í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins.

Telur félagið óforsvaranlegt með öllu að Alþingi samþykki búvörusamningana eins og þeir liggja nú fyrir og festi þannig enn frekar í sessi einokunarstöðu Mjólkursamsölunnar. Hvetur félagið Alþingi til að beita sér þvert á móti fyrir því að MS fái aukna samkeppni bæði innanlands og utan.

Aðhald olli hærra verði til bænda en lækkaði til neytenda

„Í ljósi niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins getur Alþingi ekki leyft sér að staðfesta þann samning óbreyttan. Við ítrekum það sem FA hefur áður sagt; að þingið samþykki hvorki samninginn né frumvarp landbúnaðarráðherra um búvörusamninga heldur leggi fyrir ráðherrann að semja upp á nýtt við bændur. Alþingi hefur löggjafarvaldið og hefur í hendi sér hvert framhald þessa máls verður. Bændasamtök Íslands segja löggjafarvaldinu ekki fyrir verkum, ekki ráðherrann heldur,“ segir Ólafur.

Bendir hann jafnframt á að þegar samkeppni ríkti frá Mjólku (sem kallað er Mjólka 1 í skýrslu samkeppniseftirlitsins þegar það var enn sjálfstætt fyrirtæki) hafi verð hækkað til bænda en lækkað til neytenda. Samkeppnin sé nauðsynlegt aðhald sem komi beint við budduna hjá bændum og almenningi.

Samið um hækkanir á tollum þvert á tillögur

„Í samningum um starfsskilyrði nautgriparæktar er önnur grein, sem kveður á um að hækka skuli tolla á tilteknum innfluttum mjólkurvörum, sérstaklega ostum. Þetta stuðlar að því að styrkja enn frekar einokunarstöðu MS og er þvert á tillögur sem hafa verið unnar fyrir ríkisstjórn Íslands,“ segir Ólafur.

„Það er sem sagt búið að semja við eigendur MS um að sérstakur skattur verði lagður á þá sem eru í samkeppni við markaðsráðandi fyrirtæki sem ítrekað hefur brotið samkeppnislög. Þetta er fullkomlega öfugsnúið. Verkefni Alþingis við þessar aðstæður er þvert á móti að auka samkeppni og þær kröfur sem gerðar eru til markaðsráðandi fyrirtækja, ekki að draga úr samkeppni og vígbúa enn frekar hið markaðsráðandi afl,“ segir Ólafur einnig.