Niðurstaða sérfræðimats í máli Vesturhúss Orkuveitu Reykjavíkur, er sú að hagkvæmasti og öruggasti kosturinn sé að skipta um alla útveggi hússins, en láta burðarvirki og gólf halda sér. Húsið hefur nú staðið autt í rúmt ár á meðan matið var unnið.

Áður en lokaákvörðun um framhaldið verður tekin verður verkfræðihönnun boðin út, en hún er sögð forsenda vandaðrar kostnaðaráætlunar fyrir viðgerðina. Ákvörðun um framhaldið verði tekin þegar sú áætlun liggur fyrir.

Sagt var frá því á blaðamannafundi fyrir rúmu ári að umfangsmiklar rakaskemmdir væru í svokölluðu Vesturhúsi við Bæjarháls. Þá þegar hafði verið reynt að gera við hluta útveggjanna með viðgerð upp á 460 milljónir, en árangur viðgerðanna var óviðunandi. Nokkrar hugmyndir að lausn voru þá kynntar og hafa þær verið til vandlegrar skoðunar síðan.

Viðskiptablaðið sagði frá því í lok nóvember að nokkrar lausnir væru til skoðunar, meðal annars „regnkápa“ yfir Vesturhúsið fyrir 1,7 milljarða, bygging nýrra útveggja fyrir 2,4-2,9 milljarða, bygging nýs húss frá grunni fyrir 2,15-3 milljarða, eða einfaldlega rif hússins og tilfærsla starfsemi sem í því hafði verið hýst í önnur hús á lóðinni.

Sú leið sem var valin gæti því kostað hátt í 3 milljarða samkvæmt því.

Hógværara og lágstemmdara yfirbragð
Meðal þeirra sjónarmiða sem hönnunarferlið á að byggja á er að heilir hlutar hússins nýtist svo sem hægt er, húsið fái „hógværara og lágstemmdara yfirbragð“, og skrifstofurýmin verði „sveigjanleg og heilsusamleg.“

Í takt við þau sjónarmið er áformað að formi útveggja hússins verði breytt, í stað þess að þrjár hliðar hússins slúti fram yfir sig, eins og nú er, verði allir útveggir þess lóðréttir, en áhætta og kostnaður af því að viðhalda núverandi lögun útveggjanna eru talin útiloka slíkan kost.

Gert er ráð fyrir að heildarflatarmál hússins haldist nokkurn veginn óbreytt, en unnið verður að frekari útfærslu næstu mánuðina. Stjórn Orkuveitunnar mun svo taka ákvörðun um framhaldið þegar tillaga og kostnaðaráætlun liggja fyrir, en stefnt er að því að það verði næsta vor.

Matsmenn kallaðir til vegna hugsanlegrar ábyrgðar
Þegar ljóst varð hve miklar skemmdir voru á Vesturhúsinu leitaði Orkuveitan til Héraðsdóms Reykjavíkur um að kalla til matsmenn til að meta umfang og eðli skemmdanna, orsakir og hugsanlega ábyrgð á þeim. Þeir eru nú að störfum, en Orkuveitan mun byggja ákvörðun um hugsanlegar bótakröfur á niðurstöðu matsins. Ekki er vitað hvenær niðurstöður munu liggja fyrir.