Ísland er eitt 51 ríkja sem ætla að taka upp nýjan alþjóðlegan staðal um sjálfkrafa upplýsingaskipti í skattamálum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra undirritaði yfirlýsingu þess efnis fyrir hönd Íslands á fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um gagnsæi og upplýsingaskipti í skattamálum sem fram fer í Berlín.

Markmiðið er að stöðva glæpastarfsemi sem tengist skattaundanskotum og takast á við skattsvik. Ríkin 51 skuldbinda sig til að innleiða staðalinn um sjálfkrafa upplýsingaskipti í málum sem tengjast skattaupplýsingum skattgreiðenda, og viðurkenna að árangursrík barátta gegn skattaundanskotum verði aðeins háð á alþjóðavettvangi.

Skipst verður á upplýsingum vegna reikninga í aflandsríkjum, stöðu reikninga og raunverulega eigendur. Þetta samstarf hefst árið 2017 eða 2018.