Skiptastjóri þrotabús Styrks Invest hefur sent mál félagsins til sérstaks saksóknara eftir að hafa farið gegnum bókhald þess. Þetta kemur fram í DV í dag. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur Styrkur Invest verið á borði saksóknara um allnokkurt skeið.

Styrkur Invest var tekið til gjaldþrotaskipta 6. október 2009. Lýstar kröfur í bú þess voru 47,5 milljarðar króna en engar eignir hafa fundist í þrotabúinu, enda átti Styrkur ekkert annað en tæplega 40% hlut í FL Group, sem síðar var endurnefnt Stoðir. Nokkur félög sem Jón Ásgeir Jóhannesson hafði ítök í, eins og Baugur, Hagar, ISP og 101 Capital settu bréf sín í FL inn í Styrk sem hét áður BG Capital eins og fram kemur í DV í dag.

Fimm framvirkir samningar

Í Viðskiptablaðinu 5. maí síðastliðinn kom fram að Styrkur Invest gerði framvirka samninga við Landsbankann, Glitni, Icebank, Straum fjárfestingarbanka og VBS fjárfestingarbanka um kaup á hlutabréfum í FL Group fyrir bankahrun. Ljóst er að allir þessir aðilar hafa tapað gríðarlegum fjárhæðum á samningunum.

Framvirku samningarnir virkuðu í raun eins og kúlulán. Styrkur Invest tók við hlutabréfum í FL Group frá fjármálafyrirtækjunum sem lánuðu fyrir kaupum Styrks á þeim en samþykktu á sama tíma að kaupa bréfin til baka eftir tiltekinn tíma. Þegar kom að uppgjörsdegi samninganna voru þeir hins vegar, nánast án undantekninga, endurnýjaðir óháð því hver þróun á gengi bréfanna hafði verið. Heimildir Viðskiptablaðsins herma að engir vextir hafi verið greiddir af samningunum að minnsta kosti síðasta árið fyrir bankahrun.