Skipti hf., móðurfélags Símans, hafa í öllum meginatriðum lokið samningum við lánadrottna félagsins og er að vinna við skjalagerð á lokastigi. Í samkomulaginu felst meðal annars að félagið greiðir niður alls um 19 milljarða af lánum félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

„Með því að greiða um 19 milljarða króna inn á lán félagsins mun sambankalán Skipta lækka úr um 41,7 milljörðum króna í um 22,7 milljarða króna. Engar skuldir eru afskrifaðar og öll lán Skipta eru eftir sem áður í skilum.

Viðræður hafa staðið um nokkurt skeið um að Skipti greiði lán félagsins hraðar niður en upphaflegir lánasamningar gerðu ráð fyrir. Lausafjárstaða  Skipta  hefur verið mjög sterk, félagið átti í lok júní um 16,6 milljarða króna í handbæru fé og í júlí var gengið frá sölu Skipta á norræna upplýsingatæknifyrirtækinu Sirius IT með umtalsverðum söluhagnaði.

Í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi hækkuðu skuldir Skipta umtalsvert líkt og flestra annarra íslenskra fyrirtækja. Þeir fjármunir sem nú eru greiddir hafa fengist við sölu erlendra eigna félagsins annars vegar og hins vegar með því að beita ítrasta aðhaldi í rekstri,“ segir í tilkynningu.