Matthías Matthíasson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Sölu og þjónustu á Íslandi hjá Eimskip. Undir Sölu og þjónustu fellur sala í inn- og útflutningi ásamt þjónustu og skjalavinnslu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar kemur fram að í kjölfar endurskipulagningar sé nú unnið að breytingum á stjórnskipulagi félagsins.

„Markmiðið er að  einfalda skipulag, ná fram hagræðingu í rekstri og reka áfram öflugt Eimskip sem er leiðandi í flutningastarfsemi á Norður-Atlantshafi,“ segir í tilkynningunni.

Starfsemi Eimskips á Íslandi mun í grófum dráttum skiptast í tvær einingar, annars vegar Sölu og þjónustu og hins vegar Eimskip innanlands. Unnið er að frekari breytingum á heildarskipulagi félagsins og mun verða tilkynnt um þær fyrir lok júlímánaðar.

Matthías hóf upphaflega störf hjá Eimskip árið 1983 og starfaði til ársins 2004. Matthías var m.a. sölustjóri í millilandaflutningum, forstöðumaður inn-og útflutnings og framkvæmdastjóri Eimskip UK. Hann hóf störf að nýju hjá Eimskip í apríl síðastliðnum, þá sem framkvæmdastjóri sérverkefna.

Matthías vinnur nú að því að ljúka ýmsum sérverkefnum, m.a. á skrifstofu Eimskips í Hamborg og kemur að fullu til starfa á Íslandi um miðjan júlí.

Þá mun Guðmundur Nikulásson taka við starfi framkvæmdastjóra Eimskips innanlands og fellur þar undir rekstur á innanlandskerfi félagsins, rekstur Vöruhótels, Flytjanda, vörudreifingar á höfuðborgarsvæðinu, hafnarsvæða á Íslandi og  frysti- og kæligeymslna. Guðmundur hefur starfað hjá Eimskip síðan 1997 og gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstöðum.

Þá kemur fram að í ljósi skipulagsbreytinga mun Guðmundur P. Davíðsson, framkvæmdastjóri Eimskips á Íslandi, láta af störfum hjá Eimskip. Hann hóf störf hjá félaginu í september 2007. Guðmundur stýrði starfsemi Eimskips á Íslandi sem nú hefur verið skipt niður í tvö svið, Sölu og þjónustu og Eimskip innanlands, sem heyra beint undir Gylfa Sigfússon forstjóra.