Hilmar Pétur Valgarðsson, Steingrímur Sigurðsson, Ingvar Sigurðsson og Ásbjörn Skúlason hafa verið ráðnir framkvæmdastjórar hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands og verða í hópi lykilstjórnenda félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip.

Þá hefur Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs, óskað eftir því að láta af störfum en hann er að hefja mastersnám í  Bandaríkjunum. Heiðrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri lögfræðisviðs mun jafnframt stýra samskiptasviði félagsins.

Guðmundur Nikulásson hefur verið ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri starfsemi Eimskips á Íslandi sem heyrir undir Guðmund P. Davíðsson framkvæmdastjóra Eimskips á Íslandi.

Bragi Þór Marinósson verður nú framkvæmdastjóri Eimskips í Evrópu.

„Ég býð þessa öflugu starfsmenn Eimskip velkomna í forystusveit félagsins,“ segir  Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips í tilkynningunni.

„Að undanförnu hefur félagið unnið markvisst að skipulagsbreytingum til samræmis við nýja stefnumótun stjórnar, þar sem flutningar eru skilgreindir sem kjarnastarfsemi félagsins. Umræddir stjórnendur þekkja allir vel til þeirrar starfsemi og mun reynsla þeirra nýtast félaginu vel á komandi misserum.“