Ásta H. Bragadóttir hefur tekið við nýrri stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra sjóðsins auk þess sem hún gegnir áfram starfi sviðsstjóra rekstrarsviðs.

Gunnhildur Gunnarsdóttir sem áður var sviðsstjóri þjónustusviðs lána hefur tekið við stöðu sviðsstjóra lögfræðisviðs.

Svanhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður þjónustuvers á Sauðárkróki hefur tekið við stöðu sviðsstjóra þjónustusviðs lána.

Hallur Magnússon sem áður gegndi stöðu sviðsstjóra þróunarsviðs hefur hafið rekstur eigin ráðgjafafyrirtækis og því látið af störfum hjá Íbúðalánsjóði.