Skipulagsbreytingar verða gerðar á Og Vodafone frá og með 1. október. Fjarskiptarekstur félagsins verður í sérstöku dótturfélagi undir sama heiti en móðurfélagið fær nýtt nafn og verður nefnd Dagsbrún hf.

Samhliða skipulagsbreytingum á skipan samstæðu Og fjarskipta hf. hefur Árni Pétur Jónsson verið ráðinn forstjóri Og Vodafone í stað Eiríks S. Jóhannssonar sem tekur við forstjórastöðu Dagsbrúnar hf., móðurfélags Og Vodafone. Árni útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1991. Árni er með víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu en hann hefur m.a. starfað sem framkvæmdastjóri Skipaafgreiðslu Jes Zimsen hf., sem forstjóri Tollvörugeymslu Zimsen hf. og sem framkvæmdastjóri markaðssviðs heildsölu Olís. Frá árinu 2001 starfaði Árni sem framkvæmdastjóra matvörusviðs Baugs og síðar sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Haga hf. Árni var stjórnarformaður Lyfju hf. og situr í stjórn Skeljungs hf. og Húsasmiðjunnar hf.

Og fjarskipti hf. ráðgera að nýtt skipulag samstæðunnar muni taka gildi 1. október nk. Hið nýja nafn samstæðunnar mun verða Dagsbrún hf. Fjarskiptarekstri félagsins verður komið fyrir í dótturfélaginu Og fjarskipti (Og Vodafone) sem heyra mun undir móðurfélagið ásamt 365 prentmiðlum ehf. og 365 ljósvakamiðlar ehf.

Dagsbrún hf. mun verða hið skráða félag í Kauphöll Íslands. Dagsbrún mun marka sér stöðu á sviði fjarskipta, fjölmiðlunar og afþreyingar og stefnir að því að verða leiðandi í umbreytingum á þessum sviðum hérlendis og leiða útrás íslenskra fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækja á erlenda markaði.

Fjármálaumsýsla móður- og dótturfélaga verður innan Dagsbrúnar en að öðru leyti verður reynt að tryggja sjálfstæða þróun dótturfyrirtækjanna og viðhalda þeim frumkvöðlaanda sem drifið hefur áfram uppbyggingu Og Vodafone og 365 miðla. Stefnt er að því að vöxtur Dagsbrúnar verði jöfnum höndum innan núverandi dótturfyrirtækja og með kaupum á öðrum félögum á sviði fjarskipta, fjölmiðla og afþreyingar. Þegar hefur verið markað upphaf að vexti á erlendri grund með kaupum á fjarskiptafélaginu P/F Kall í Færeyjum.

Forstjóri Dagsbrúnar hf. verður Eiríkur S. Jóhannsson en hann er í dag forstjóri Og fjarskipta hf. Eiríkur mun jafnframt verða stjórnarformaður dótturfélaganna. Viðar Þorkelsson verður framkvæmdastjóri fjármálasviðs Dagsbrúnar auk þess að vera staðgengill forstjóra félagsins. Gunnar Smári Egilsson er forstjóri 365 miðla. Nýr forstjóri Og Vodafone verður Árni Pétur Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Haga. Þessir fjórir mynda framkvæmdastjórn Dagsbrúnar.

Það er trú stjórnar félagsins að nýtt skipulag samstæðunnar muni efla hag hluthafa, viðskiptavina og starfsmanna enn frekar.