Ómar Örn Jónsson hefur tekið við nýju starfi sem framkvæmdastjóri velferðartækni hjá Öryggismiðstöðinni. Við starfi markaðsstjóra Öryggismiðstöðvarinnar tekur Auður Lilja Davíðsdóttir. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Ómar hefur starfað hjá Öryggismiðstöðinni allt frá árinu 2003 og setið í framkvæmdastjórn fyrst sem yfirmaður sölumála og síðar sem framkvæmdastjóri markaðsmála. Auður Lilja Davíðsdóttir hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra sölusviðs en samhliða þessum breytingum eru markaðs- og sölusvið nú sameinuð undir stjórn Auðar Lilju. Hún hefur starfað hjá Öryggismiðstöðinni síðastliðin 17 ár og verið stjórnandi á sölusviði síðan 2013. Hún er viðskiptafræðingur með MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

Ómar Örn Jónsson, nýr framkvæmdastjóri velferðartækni hjá Öryggismiðstöðinni:

,,Mikill vöxtur hefur einkennt starfsemi fyrirtækisins á sviði velferðar- og heilbrigðistækni á undanförnum misserum og taka þessar breytingar mið af áherslum félagsins á enn frekari sókn og vöxt á því sviði."

Auður Lilja Davíðsdóttir, nýr markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar:

,,Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki með stórt lausnaborð meðal annars í öryggislausnum og velferðartækni og það verður skemmtilegt að fá að taka þátt í því ásamt góðu fólki að efla enn frekar ásýnd fyrirtækisins og halda áfram því öfluga starfi sem unnið hefur verið undanfarin ár."