Þrjú tekjusvið Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. - Markaðsviðskipti, Eigin viðskipti og Fjárfestingasvið - teljast nú hluti af Verðbréfasviði.

Tekjusviðin þrjú starfa þó áfram sem sjálfstæðar einingar innan Verðbréfasviðs og heyra undir Benedikt Gíslason framkvæmdastjóra Verðbréfasviðs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straum.   Þar kemur fram að Skúli Valberg Ólafsson framkvæmdastjóri hefur verið skipaður forstöðumaður Fjárfestingasviðs, sem stofnað var fyrr á þessu ári.

Starfsemi þess felst í fjárfestingum, meðal annars í skráðum og óskráðum hlutabréfum, auk þess sem það hefur með höndum samskipti við sjóði á vegum dóttur- og hlutdeildarfélaga Straums, svo sem Stramur Capital Management (SCM), eQ, Wood & Co, Julia Capital Management, Brú o.fl.

Skúli hefur starfað hjá Straumi frá árinu 2003 og haft umsjón með margvíslegum verkefnum er tengjast vexti og framþróun bankans, nú síðast sem framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs.   Samhliða því að Skúli tekur við ofangreindri stöðu er staða framkvæmdastjóra Rekstrarsviðs lögð niður.

Viðskiptaver bankans, sem Jónmundur Guðmundsson veitir forstöðu, heyrir hér eftir undir Stephen Jack fjármálastjóra, og þjónustuhluti Rekstrarsviðs færist undir Starfsmannasvið og forstöðumann þess, Davíð Oddsson.   Breytingar þessar hafa ekki í för með sér mannabreytingar í framkvæmdastjórn Straums, samkvæmt tilkynningunni.