Skipulagsbreytingar hafa verið gerðar hjá Straumi-Burðarási fjárfestingabanka hf. í þá veru að tvö svið bankans, Fjárfestatengsl og Samskiptasvið, hafa verið sameinuð undir merkjum Samskipta- og markaðssviðs.

Yfirmaður sviðsins er Georg Andersen, sem áður var forstöðumaður Fjárfestatengsla.

Samhliða þessum breytingum hefur Ólafur Teitur Guðnason, sem áður bar ábyrgð á fjölmiðlasamskiptum Straums á Íslandi, einnig tekið að sér umsjón með fjölmiðlasamskiptum bankans erlendis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Staumi.