Vodafone hefur ákveðið að fækka um einn í framkvæmdastjórn félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Félagið hefur gert breytingar á aðalskipuriti á þann hátt að starfsmannamál, sem áður heyrðu undir samskiptasvið, færast undir fjármála- og rekstrarsvið. Markaðsmál og samskipti færast jafnframt undir forstjóra félagsins, sem og lögfræðimál undir nýja stöðu aðallögfræðings.

Segir í tilkynningunni að breytingunum sé ætlað að einfalda en á sama hátt styrkja starfsemi félagsins. Nýtt skipurit má sjá hér .