Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á skipuriti Wow air en sem kunnugt er hyggst Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi félagsins, flytja til London en gegna þó áfram stöðu forstjóra.

Inga Birna Ragnarsdóttir
Inga Birna Ragnarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Inga Birna Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Wow ferða, hefur nú verið ráðin aðstoðarforstjóri en hún gegnir um leið stöðu framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Wow air en sviðin tvö voru nýlega sameinuð.

Undir hennar svið heyrir Helgi Björnsson forstöðumaður tekjustýringar, Guðmundur Arnar Guðmundsson forstöðumaður markaðssviðs, Hafrún Pálsdóttir forstöðumaður ferðaskrifstofusölu, Anna Huld Óskarsdóttir forstöðumaður söluvers og Svanhvít Friðriksdóttir upplýsingafulltrúi og forstöðumaður samskiptasviðs.

Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins hefur Inga Birna verið hægri hönd Skúla við rekstur fyrirtækisins og mun hún þannig stýra stærstum hluta starfseminnar hér á landi í fjarveru Skúla, þó hann muni hafa mikla viðveru hér á landi. Sem kunnugt er var Björn Ingi Knútsson nýlega ráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs og mun hann þannig stýra stórum hluta af rekstri félagsins, m.a. því ferli að sækja um flugrekstrarleyfi.