Seyðisfjarðarkaupstaður, Fljótsdalshérað og Vogar hafa öll skilað inn umsögnum um lög sem miða að því að flytja skipulagsvaldið frá borgarstjórn Reykjavíkur til ríkisins . Deildar meiningar eru meðal þessara sveitarfélaga um það hvort flytja eigi skipulagsvaldið með lagasetningu frá Reykjavíkurborg eða ekki.
Af umsögn sveitarfélagsins Voga má sjá að sveitarfélagið leggst gegn því að lögin verði samþykkt. Í umsögn Voga segir einfaldlega: „Bæjarráð Sveitarfélgasins Voga leggur áherslu á að skipulagsvald verði ekki tekið af sveitarfélögum."
Tekið sé tillit til almannahagsmuna
Í umsögnum Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar er ekki tekin svo afdráttarlaus afstaða. Umsagnirnar eru efnislega samhljóða og í báðum er tekið fram að skipulagsvald skuli almennt vera hjá viðkomandi sveitarfélagi. Hins vegar geti komið upp aðstæður þar sem ríkið geti tekið af þeim skipulagsvaldið til að tryggja almannahagsmuni.
„Bæjarráð telur eðlilegt að sett verði sérstök lög um aIþjóðafIugvelli landsins þar sem heildarhagsmunir byggða landsins og þjóðar séu í fyrirrúmi. í þeim verði tekið á skipulagsmálum vallanna heildrænt. Bæjarráð telur að skipulagsvaldið sé sveitarfélögunum mikilvægt og að það sé almennt virt. Það geti þó ekki verið hafið yfir almannahagsmuni," segir í umsögn Seyðisfjarðarkaupstaðar.
Í umsögn Fljótsdalshéraðs segir : „Í ljósi mikilvægis Reykjavíkurflugvallar fyrir landið allt telur bæjarstjórn að eðlilegt sé að ríkisvaldið hlutist sérstaklega til um skipulag flugvallarins og styður því frumvarpið."