SkjárEinn mun halda áfram útsendingum og flestir starfsmenn stöðvarinnar verða endurráðnir.
Þessi ákvörðun er tekin að því gefnu að umsvif Ríkisútvarpins á auglýsingamarkaði verði takmörkuð en frumvarp þess efnis er nú til umfjöllunar á Alþingi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá SkjáEinum.
Í tilkynningunni kemur fram að í frumvarpinu eru settar skorður við þátttöku RÚV á auglýsingamarkaði.
„Reikna má með að sú ráðstöfun efli tekjugrunn SkjásEins sem reiðir sig eingöngu á auglýsingatekjur,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur fram að á undanförnum vikum hefur verið endursamið við erlenda birgja SkjásEins og efniskostnaður lækkaður.
„Þessar tvær breytingar á rekstrargrunni stöðvarinnar, annars vegar lækkun efniskostnaðar og hins vegar sanngjarnara samkeppnisumhverfi á auglýsingamarkaði, gera það að verkum að forsvarsmenn SkjásEins hafa ákveðið að halda rekstrinum áfram,“ segir í tilkynningunni.
„Með frumvarpi menntamálaráðherra um RÚV eru stigin mikilvæg skref í átt að sanngjarnara samkeppnisumhverfi,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir sjónvarpsstjóri í tilkynningunni.
„Þar kemur fram skýr pólitískur vilji þó að vissulega hefðum við kosið að sjá meiri takmarkanir. Það sem skiptir mestu máli er að vilji stjórnvalda er skýr. Starfshópur menntamálaráðherra og starfsfólk ráðuneytisins hafa trú á því að í nýju frumvarpi felist umtalsverðar takmarkanir á umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði. Við ætlum að treysta stjórnvöldum fyrir því að þetta sé rétt mat, ekki síst þar sem í frumvarpinu er ákvæði um endurskoðun fyrir 1. júlí á næsta ári. Það þýðir að tækifæri verður til þess að bregðast við ef markmiði frumvarpsins verður ekki náð, þ.e. að veita einkareknu stöðvunum aukið svigrúm.“