Frá miðjum nóvember næstkomandi verður sjónvarpsstöðin SkjárEinn áskriftarstöð. SkjárEinn verður þá sendur út í læstri dagskrá. Áskrift mun kosta 2.200 kr. á mánuði en ekki verður byrjað að innheimta áskriftargjöld fyrr en 1. desember.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skjá miðlum, rekstraraðila SkjásEins en allir sem skrá sig fyrir áskrift munu hafa aðgang að stöðinni án endurgjalds frá miðjum nóvember til 1. desember.

Fram kemur í tilkynningunni að hægt verði að kaupa áskrift bæði í gegnum Sjónvarp Símans og Digital Ísland hjá Vodafone þannig að ekki verður þörf á að skipta út þeim myndlyklum sem fyrir eru á heimilinu.

„SkjárEinn, eins og fjölmörg önnur íslensk fyrirtæki, lenti í miklum erfiðleikum þegar efnahagskreppan skall á – og á tímabili leit út fyrir að stöðin myndi hætta útsendingum sínum,“ segir í tilkynningunni.

„Stuðningur þjóðarinnar, samstaða starfsmanna og endursamningar við erlenda birgja Skjásins urðu til þess að sú varð ekki raunin.“

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins, segir í tilkynningunni að því miður hafi þessi úrræði ekki dugað til þar sem auglýsingamarkaðurinn, eina tekjulind SkjásEins, hafi dregist mjög harkalega saman.

„Við viljum bjóða SkjáEinn ókeypis en okkur er það einfaldlega ekki fært. Við skuldum áhorfendum, starfsmönnum og samstarfsaðilum okkar að láta reyna á alla kosti sem geta fleytt okkur áfram. Við viljum ekki gefast upp og því tökum við þetta skref,“  segir Sigríður í tilkynningunni.