Skjárinn ehf, sem rekur sjónvarpsstöðina SkjáEinn, hefur kært til lögreglu ólögmæta afritun og dreifingu á þáttum úr hinni vinsælu sjónvarpsþáttaröð „Biggest Looser Ísland.“ Fram kemur í tilkynningu að kæran lýtur að ólögmætri afritun tiltekins einstaklings á þáttunum og dreifingu þeirra á slóðinni deildu.net. Forsvarsmenn Skjásins telja að dreifing þáttanna hafi valdið fyrirtækinu miklu tjóni.

Í tilkynningu frá Skjánum segir að þar sé svo metið að um um skýrt brot á ákvæðum höfundalaga og ákvæðum almennra hegningarlaga sé að ræða. Samkvæmt upplýsingum frá embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er rannsókn langt á veg komin og málið að verulegu leyti upplýst.

Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Skjásins, telur mikilvægt að bregðast við ólöglegu niðurhali sem þessu af fullum krafti. „Við teljum afar mikilvægt að bregðast hart við hvers kyns brotum á höfundaréttarvörðu efni okkar. Þættirnir eru dýrasta innlenda framleiðsla sem Skjárinn hefur látið ráðast í til þessa. Er hér því um veigamikla hagsmuni að ræða, sem varðir eru af eignarréttarákvæðum stjórnarskrár. Það þarf að verða vitundavakning í þessum málaflokki, ég var allavega alinn upp við það að ef maður vill ekki greiða fyrir hlutinn fær maður ekki að neyta hans,“ segir Friðrik í tilkynningunni og hrósar lögreglu fyrir vel unnin störf í málinu.